Veturinn 2020-2021 að byrja

Það er farið að grána í fjöllin og styttist í troðnar brautir. Þá er tilvalið að grafa rykug skíðin upp úr geymslunni og koma þeim í stand fyrir veturinn.

Bláfjöll í dag 12.nóv 2020

Tek að mér að slípa, strúktúrera og flúorvaxbera skíði fyrir æfingar og keppni. Hef langa reynslu af umhirðu gönguskíða

Gísli Harðarson

Er í Kópavogi
Hafið samband

gonguskidi@gmail.com

Gleðilegt sumar

Vorveður, vorfæri og loksins sól. Síðustu skíðadagar vetrarins að renna upp í Bláfjöllum.
Þakka öllum fyrir veturinn, þótt skrýtinn væri.
Sjáumst þegar fer að frysta aftur, þangað til: Gleðilegt sumar
Og minni á að það er góður vani að vaxbera skíðin fyrir sumarið svo sólinn þorni ekki upp
gonguskidi@gmail.com

Takk fyrir árið

2019 að líða undir lok. Desember hefur ekki leikið sérlega vel við okkur gönguskíðafólk á Höfuðborgarsvæðinu, þótt nokkrir góðir dagar hafi komið inn á milli. Það er prýðilegt magn af snjó í Bláfjöllum en veður og vindar mættu vera skaplegri. Vonumst til betri síðari hluta vetrar. Verða skíðin þín tilbúin þegar rofar til í veðrinu?